Verkstæðisreglur
Þessar verkstæðisreglur gilda um reiðhjól, rafhjól, rafhlaupahjól, rafhlöður og aðra hluti sem teknir eru inn til skoðunar, viðgerðar eða þjónustu hjá Fullt af orku.
Afhending og móttaka
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að fylgjast með stöðu máls og sækja hlut þegar tilkynning hefur verið send. Þegar viðgerð er lokið er viðskiptavini tilkynnt með SMS, símtali eða öðrum eðlilegum samskiptamáta.
Geymslugjald
Reiðhjól og rafhlaupahjól sem eru ekki sótt innan 5 daga frá því að SMS-tilkynning um lok viðgerðar var send bera geymslugjald að fjárhæð 5.490 kr. á viku.
Ósóttir hlutir
Reiðhjól og rafhlaupahjól sem ekki hafa verið sótt innan 2 mánaða frá því að tilkynning var send geta talist yfirgefin og orðið eign verkstæðisins.
Eigandi getur óskað eftir að leysa hlutinn út áður en endanleg ráðstöfun fer fram með því að greiða:
- fullan viðgerðarkostnað og varahlutir eða skoðunargjald
- áfallinn geymslukostnað
- 5.490 kr. fyrir hverja viku frá sendingu SMS-tilkynningar
- þjónustugjald sem er í dag 29,990 isk
- allt er afgreitt gegnum netfangið og krafa er sent í heimabanka
- hjólið verður afhent þegar greiðsla er kláruð.
Ábyrgð viðskiptavinar á samskiptum
Það er á ábyrgð viðskiptavinar að hafa samband og kanna stöðu máls ef SMS berst ekki, glatast eða fer fram hjá viðskiptavini.
Viðskiptavini er bent á að hafa samband:
- eftir 3 daga frá því að hlutur er afhentur í þjónustu til að kanna stöðu, eða
- í síðasta lagi innan 8 daga frá afhendingu, miðað við 3 daga viðgerðartíma og 5 daga sækjutíma
Ábyrgð á þjónustu
Á allri þjónustu og viðgerðum gildir 3 mánaða ábyrgð, enda megi rekja bilun beint til mistaka eða galla í vinnu verkstæðisins.
Ábyrgð fellur úr gildi ef merki eru um:
- fall eða högg
- vatnsskemmdir eða raka
- ranga meðferð
- utanaðkomandi skemmdir
- breytingar eða íhlutun eftir afhendingu
- upsettningu ekki af tæknimanni eða rafvirkja!
Ábyrgð á rafhlöðum
Á rafhlöðum gildir 6 mánaða ábyrgð, þar sem þær eru viðkvæmar og geta auðveldlega skemmst við ranga notkun eða meðferð.
Ábyrgð á rafhlöðum nær ekki til tjóns eða bilana sem rekja má til:
- vatnsskemmda
- falls eða annars líkamlegs tjóns
- breytinga á raflögnum eða tengingum
- rangrar tengingar
- brunamerkja eða ofhitnunar
- opnun umbúða
- djúprar afhleðslur
- uppsetningar án tæknimanns eða fullnægjandi þekkingar
- annarrar rangrar notkunar eða meðferðar sem getur skemmt rafhlöðuna
Samþykki við afhendingu
Með því að afhenda hlut til viðgerðar eða þjónustu samþykkir viðskiptavinur þessar verkstæðisreglur.
