Skilmálar og skilyrði
Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum og þjónustu hjá Fullt af orku ehf. með starfsstöð að Hringbraut 119, 101 Reykjavík. Með kaupum samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála.
Verð og greiðslur
Öll verð í vefverslun eru birt með virðisaukaskatti nema annað sé sérstaklega tekið fram. Greiðsla fer fram með þeim greiðsluleiðum sem í boði eru hverju sinni í vefverslun eða samkvæmt samkomulagi.
Pantanir
Pöntun telst móttekin þegar staðfesting hefur verið send til viðskiptavinar. Fullt af orku áskilur sér rétt til að hafna pöntun vegna rangra verðupplýsinga, birgðastöðu eða annarra augljósra mistaka.
Ábyrgð og notkun
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að velja rétta vöru fyrir sitt tæki eða notkun. Fullt af orku leitast við að veita réttar upplýsingar um samhæfni, en ábyrgist ekki að vara henti nema það hafi verið sérstaklega staðfest.
Ábyrgð á vörum er samkvæmt íslenskum lögum og almennum neytendarétti. Á viðgerðarþjónustu gildir 1 mánaðar ábyrgð, nema annað sé tekið fram. Á vörum gildir almennt 2 ára ábyrgð eftir því sem við á samkvæmt lögum.
Sérpantanir og sérsmíði
Sérpantaðar vörur, sérsmíðaðar rafhlöður og sérverkefni eru unnin samkvæmt beiðni viðskiptavinar. Slík kaup kunna að vera undanþegin almennum rétti til að falla frá kaupum, hafi vinna hafist eða vara verið sérsniðin að óskum kaupanda.
Takmörkun ábyrgðar
Fullt af orku ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til rangrar notkunar, rangrar uppsetningar, breytinga sem gerðar eru af þriðja aðila eða eðlilegs slits. Viðskiptavini er bent á að fylgja leiðbeiningum um notkun, hleðslu og öryggi.
Samskiptaupplýsingar
